Sigurður Guðmundsson: Lestrarkvöld Nýló

21.10.2021

20:00

Sigurður Guðmundsson, myndlistarmaður og heiðursfélagi Nýlistasafnsins leiðir lestrarkvöld Nýlistasafnsins sem haldið verður í Marshallhúsinu. Til umfjöllunar er texti Sigurðar, Tími, sem fluttur var í Norræna Húsinu árið 1969. Sigurður mun kynna og leiða samræður um efni textans, sem má nálgast í sýningarskrá Sequences X – Kominn tími til, sem og á heimasíðu hátíðarinnar.

Lestarfélag Nýlistasafnsins er samræðuvettvangur Nýlistasafnsins sem starfrækt hefur verið frá 2018. Á völdum kvöldum yfir vetrarmánuðina er blásið til lestrarkvölda í húsakynnum safnsins í Marshallhúsinu, þar sem hverju sinni er rætt er á breiðum grunni fyrirfram ákveðið lesefni. Tilgangur kvöldanna er að skapa vettvang til samræðu um efni sem tengist listsköpun, búa til andlega næringu fyrir verkefni í vinnslu.

Textann má finna hér

Sigurður Guðmundsson (f. 1942) er meðal fremstu myndlistarmanna Íslendinga. Hann var nemandi við Myndlista- og handíðaskóla Íslands á árunum 1960–1963 en síðan í Hollandi þar sem hann lauk námi í myndlist. Sigurður býr og starfar á Djúpavogi, í Reykjavík, Amsterdam og Xiamen í Kína. Sigurður hefur haldið fjölda einkasýninga víðsvegar um heiminn en listamannsferill hans spannar rúmlega 40 ára tímabil.

Víða er að finna stórar höggmyndir eftir Sigurð í opnu rými, bæði á Norðurlöndum og Mið-Evrópu. Sigurður hefur unnið fjölmargar samkeppnir og má þar nefna samkeppni um útilistaverk við Barnaspítala Hringsins og útilistaverk á vegum Reykjavíkurborgar í tilefni aldamótanna.

Þegar Sigurður er spurður að því hvaða hugmynd liggi að baki verkum hans svarar hann á þessa leið: „Það er engin hugmynd á bak við listaverkið – ég reyni að vinna ekki með hugmyndir.“ Áhersla Sigurðar er á hið skáldlega með heimspekilegu ívafi. Hann vinnur í fjölda miðla, ljósmyndir, höggmyndir, teikningar, grafík og gjörninga, en hefur líka samið tónverk og skrifað bækur.