Sigurður Guðmundsson

(IS)

Sigurður Guðmundsson (f. 1942) er meðal fremstu myndlistarmanna Íslendinga. Hann var nemandi við Myndlista- og handíðaskóla Íslands á árunum 1960–1963 en síðan í Hollandi þar sem hann lauk námi í myndlist. Sigurður býr og starfar á Djúpavogi, í Reykjavík, Amsterdam og Xiamen í Kína. Sigurður hefur haldið fjölda einkasýninga víðsvegar um heiminn en listamannsferill hans spannar rúmlega 40 ára tímabil.

Víða er að finna stórar höggmyndir eftir Sigurð í opnu rými, bæði á Norðurlöndum og Mið-Evrópu. Sigurður hefur unnið fjölmargar samkeppnir og má þar nefna samkeppni um útilistaverk við Barnaspítala Hringsins og útilistaverk á vegum Reykjavíkurborgar í tilefni aldamótanna.

Þegar Sigurður er spurður að því hvaða hugmynd liggi að baki verkum hans svarar hann á þessa leið: „Það er engin hugmynd á bak við listaverkið – ég reyni að vinna ekki með hugmyndir.“ Áhersla Sigurðar er á hið skáldlega með heimspekilegu ívafi. Hann vinnur í fjölda miðla, ljósmyndir, höggmyndir, teikningar, grafík og gjörninga, en hefur líka samið tónverk og skrifað bækur.

Associated events: