Sæmundur Þór Helgason: Solar Plexus Pressure Belt™G2

16.10.2021

–24.10.2021

11:00

–18:00

Solar Plexus Pressure Belt™ G2 er önnur kynslóð djúpþrýstingstæknibúnaðar sem er hannaður til þess að þrýsta inn í magagrófina með það að markmiði að draga úr fjárhagskvíða án lyfjameðferðar. Búnaðurinn er framleiddur af Félagi Borgara, sem eru hagsmunasamtök borgara og þrýstihópur um borgaralaun á Íslandi. 

Frumgerð beltisins var þróað af listamanninum árið 2018 í samstarfi við tískuhönnuðinn Agötu Mickiewicz og grafíska hönnuðinn Gabríel Markan. Nýja útfærsla beltisins hefur verið uppfærð í samræmi við prófun búnaðarins og fyrir vikið öðlast straumlínulagað form sem fellur að mannslíkamanum. 

Á meðan Sequences X stendur yfir verður beltið fáanlegt í ELKO í mismunandi litum og stærðum. Gestir eru hvattir til að pufa beltið og taka þátt í instagram leik þar sem einn heppinn þáttakandi eignast Solar Plexus Pressure Belt™G2.

Sæmundur Þór Helgason (f. 1986) er myndlistarmaður búsettur í Amsterdam. Hann er meðstofnandi Cosmos Carl – Platform Parasite, vefvangs-sníkils sem notfærir sér utanaðkomandi netpalla sem hýsla listaverka í almenningsrými á netinu. Árið 2017 stofnaði Sæmundur Félag Borgara,  sem eru hagsmunasamtök borgara og þrýstihópur um borgaralaun á Íslandi. Hann er eins og er með vinnuaðsetur hjá Rijksakademie van Beeldende Kunsten í Amsterdam.