Miles Greenberg: Oysterknife

22.10.2021

–23.10.2021

18:00

–18:00

Í Tjarnarbíó verður samfelld tuttugu og fjögra tíma vörpun á verkinu Oysterknife (2020) eftir kanadíska myndlistarmanninn Miles Greenberg (b. 1997). Verkið var upphaflega flutt beint á netinu fyrir tilstilli stofnunar Marinu Abramović og sýnir Greenberg ganga á færibandi í mannlausu leikhúsi í Centre Phi í Montreal í tuttugu og fjóra tíma samfleytt. Titillinn Oysterknife kemur frá ritgerð Zoru Neale-Hurston, How it Feels to Be Colored Me, frá 1928, þar sem hún segist ekki „gráta út í heiminn … ég er of upptekin við að brýna ostruhnífinn minn.“

Miles Greenberg (f. 1997 í Montreal, Kanada, býr í New York) er gjörningalistamaður og skúlptúristi sem hefur gert líkamann og líkamshreyfingar að viðfangsefni sínu.

Sautján ára gamall hætti Miles formlegri skólagöngu og hellti sér út í sjálfstætt, fjögurra ára rannsóknarverkefni sem snýr að líkömum svartra í tengslum við hreyfingu og arkitektúr. Hann hefur dvalið víða sem gestalistamaður og unnið að rannsóknum sínum t.d. við École Jacques Lecoq og Musée du Palais de Tokyo í París, Red Gate-galleríið í Beijing og Watermill Center á Long Island. Miles er að mestu leyti sjálflærður í málvísindum, ilmvatnsgerð og líkamsleikhúsi, og hefur lært hjá leiðbeinendum á borð við Édouard Lock, Robert Wilson og Marinu Abramović.

Verk Greenbergs samanstanda af víðáttumiklu, alltumlykjandi skynjunarumhverfi þar sem reynt er á líkamann í tengslum við rými og þolmörk hans könnuð í langdregnum gjörningum og í skúlptúrformi. Greenberg vinnur eftir strangri aðferðafræði sem hvílir á þröskuldi gjörninga og skúlptúrs og fylgja verkin óháðum, ólínulegum rökkerfum sem skiljast best hvert í samhengi við annað.

Stills from Oysterknife, 2020. Courtesy of the artist.