Videóferðalag og lokapartý Sequences ix í Bíó Paradís

Chromatography 1 — 15x 25 cm felt pen on washi paper.

Tvö videóverk verða sýnd í Bíó Paradís á laugardaginn. Aphantasia eftir Amöndu Riffo, verður frumsýnd sem sjónræn tilraun þar sem áhorfendum er boðið til æfingar sem sameinar ólíkar rásir skynjunar.

Í verkinu A Tree is Like a Man gerir Þorbjörg Jónsdóttir svo tilraun til að snerta aðra heima. Hún kynntist shamaninum Don William fyrir tilviljun þegar hún var á ferðalagi í Amazon- frumskóginum í Kólumbíu árið 2000 og vann myndina út frá kynnum þeirra. Hún er tekin á 16mm filmu yfir nokkurra ára tímabil og fjallar um plöntulyfið Ayahuasca, landslag frumskógarins og andaheim fólksins sem þar býr.

Að sýningum, Amanda Riffo og Þorbjargar Jónsdóttur, loknum mun bresta á með lokateiti Sequences ix.  Þar verður fullt af ferskum uppákomum og skemmtikröftum. Bíó Paradís og Mekka Wines&Spirits sjá um barinn sem mun afgreiða veigar á hóflegu verði. Kunnum við þeim þakkir fyrir.

Þeir sem koma fram eru :
Austin James Christ
Silfrún & Tara munu vera kynnar kvöldsins.
Gyðjan Uxi
DJ Möðerfönker (Melkorka Þorkelsdóttir)
Prince Fendi the Punisher
SIDE PROJECT

Stemningsstjóri: Sean Patrick O’Brien
Vídeó snúður: Oscar Gränse

Sjáumst þar!

Related