Þetta líður hjá er að finna við bakka Varmár í Hveragerði. 12 tonna grágrýti úr Núpafjalli hefur verið komið fyrir á bakka árinnar og höggvið hefur verið í grýtið stól, unnum af Matthíasi Rúnari Sigurðssyni myndhöggvara. Stóllinn snýr í há suður og geta allir notið þar kyrrðar og útsýnis yfir ána. Verkið fjallar um vináttusamband okkar og náttúrunnar; hvað náttúran getur miðlað til okkar á viðkvæmum stundum og að okkur er óhætt að lifa með tilfinningum okkar.
Ef þungt er þitt geð
þá gakktu með sjó, og sittu við eld.Svo kvað völvan forðum.
Verkið er tileinkað unglingum.
Heiðurslistamaður Sequences X – Kominn tími til er Elísabet Kristín Jökulsdóttir. Elísabet hefur þá hæfileika að geta spunnið þræði á milli ólíkra listforma og notar rödd sína til þess að segja hlutina hispurslaust, en jafnframt minnir okkur á töfrana. Elísabet býr yfir tungumáli gyðjunnar og birtist okkur í ólíkum myndum; skapar og eyðir til skiptis, er utan og innan við og leikur sér að því að dansa á línunni þar á milli. Í verkum sínum er Elísabet greinandi á eigið sjálf og þjóðarinnar og tekst á við hið útópíska hlutverk listarinnar sem hreyfandi afli í samfélaginu. Liggur styrkur hennar í því lifandi og margbreytilega sambandi sem hún á við áhorfendur og áheyrendur sína, þar sem hún sjálf er sem almenningslistaverk sem stöðugt hreyfir við hugmyndum samfélagsins og hreyfir þannig við tímanum og tekur þátt í hinni eilífu endursköpun heimsins.
Matthías Rúnar Sigurðsson (f. 1988) er myndhöggvari og gerir höggmyndir sínar úr stein. Hann hjó fyrst í stein árið 2009 og síðan þá hefur hann gert fjölmargar höggmyndir og haldið sýningar m.a. í Safnasafninu og í Ásmundarsafni. Síðan árið 2018 hefur Matthías unnið að höggmyndum í garðinum fyrir utan Ásmundarsal.