Teo Ala-Ruona: Lacuna - Gjörningur (miðasala)

21.10.2023

19:00

Lacuna er líkamshryllingur og sjálfssaga sem byggir á drauga- legum minningum og reynslu.Verkið myndar galdraþulu úr bæði orðum og tónlist. „Lacuna“ þýðir op eða bil. Fyrir Ala-Ruona hefur þessi merking orðsins tvöfalda túlkun. Hún er bæði draugur – sníkjudýrsleg minning um líkama hans fyrir leiðrétt- ingu – en að sama skapi er hún dásamlegt tóm án áfalla. Myndir og reynsla úr fortíðinni eru særðar upp á sviðinu í gegnum lát- bragð, orð, öskur og opnar þannig yfirskilvitlegt hlið inn í líkama listamannsins. Gestum er boðið að ganga í gegnum hliðið, inn í holdlega alsælu.

1.500 kr.

Miðar í hurð og á Tix.is

Teo Ala-Ruona (f. 1990) er finnskur gjörningalistamaður sem leggur áherslu á getskáldskap í formi gjörninga sem sameinar æfingar í líkamlegum skáldskap, hreyfingu og ýmiskonar radd- beitingu. Hann kannar þemu eins og kynlíf, hinsegin vistfræði, eiturhrif, kyn og kyngervi.