Lacuna er líkams hryllingur og sjálfssaga sem byggir á draugalegum minningum og lifaðri reynslu. Verkið myndar galdra þulu úr bæði orðum og tónlist. „Lacuna“ þýðir op eða bil. Fyrir Ala-Ruona hefur þessi merking orðsins tvöfalda túlkun. Hún er bæði minning um líkama hans fyrir leiðréttingu – en að sama skapi er hún dásamlegt tóm án áfalla. Myndir og reynslur úr fortíðinni eru særðar upp á sviðinu í gegnum látbragð, orð, öskur og opnar þannig yfirskilvitlegt hlið inn í líkama listamannsins. Gestum er boðið að ganga í gegnum hliðið, inn í holdlega alsælu.
-Gjörningurinn inniheldur nekt, hávaða og vísanir í átröskun.
1.500 kr.
Miðar á Tix.is