Philip Jeck í Fríkirkjunni í Reykjavík

From Jeck’s performance at the Boiler Room in 2015

Listamaðurinn Philip Jeck heldur tónleika í Fríkirkjunni á föstudagskvöld á vegum Sequences IX – Í alvöru. Þetta eru tónleikar sem áhugafólk um tilraunamennsku ætti ekki að láta fram hjá sér fara, enda mikill fengur að fá Jeck til landsins.
Tryggið ykkur miða hér eða mætið tímanlega í Fríkirkjuna á þessu fallega haustkvöldi, tónleikarnir hefjast kl. 20.

Philip Jeck hefur um áratugabil nýtt sér hljóð sem uppistöðuna í list sinni. Í verkum hans býr djúp tilfinning fyrir veröld sem var, gamlir plötuspilarar og lúnar vínilplötur sem hann hefur gjarnan grafið upp á fornsölum mynda grunninn að tjáningarríkum og seiðandi hljóðverkum, fullum af brestum og braki, minningum og þrám.

Philip Jeck hefur sent frá sér fjölda rómaðra platna sem út hafa komið hjá breska útgáfufyrirtækinu TOUCH, spilað á tónleikum og listahátíðum víða um heim og gert hljóðinnsetningar fyrir virt listrými og listahátíðir á borð við Hayward Gallery, Hamburger Bahnhof og Tvíæringinn í Liverpool. Jeck hefur samið tónlist fyrir óperur, balletta og kvikmyndir og unnið með tónlistarmönnum á borð við Gavin Bryars, Jah Wobble (úr Public Image Ltd), Jaki Liebezeit (úr CAN), Jacob Kirkegaard, Jóhanni Jóhannssyni og Hildi Guðnadóttur.

Eitt af þekktustu verkum Philip Jeck er án efa Vinyl Requiem eða Vínilsálumessa fyrir 180 gamla Dansette plötuspilara, unnið í samstarfi við myndlistarmanninn Lol Sargent, frumflutt í Union Chapel í London árið 1993.

Related