Heiðurslistamaður hátíðarinnar í ár verður Kristinn Guðbrandur Harðarson (f. 1955) sem hefur starfað ötullega í íslensku myndlistarlífi um áratuga skeið. Í verkum Kristins á sér stað persónuleg og ljóðræn úrvinnsla á hans nánasta umhverfi þar sem hann notast við fjölbreyttar miðlunarleiðir, texta, útsaum, skúlptúra, veggmálverk, teiknimyndir og gjörninga svo fátt eitt sé nefnt. Kristinn mun halda einkasýningu í Ásmundarsal og gefa út bókverk, sem verður í leiðinni sjálfstætt sýningarrými.