Young Boy Dancing Group var stofnaður 2014 sem nafnlaus lifandi gjörningahópur sem kemur fram á ólíkum stöðum og samanstendur af fjölbreyttum dönsurum hverju sinni. Hópurinn hefur unnið með vídeó, ljósmyndun, tísku, skúlptúr og innsetningar en er best þekktur fyrir hráa gjörninga sem einkennast af nánd þar sem líkaminn mætir fínleika ljóssins.
Gjörningurinn sem sýndur verður á Sequences XI er lokaatriði hátíðarinnar. Portinu í Hafnarhúsinu verður umbreytt í eyðilagt landslag þar sem líkamsleifar ögra mörkum mannlegs forms.