Sequences verður haldin í níunda sinn dagana 11. – 20. október í Reykjavík.
34 listamenn taka þátt í hátíðinni að þessu sinni og spannar framlag þeirra vítt svið; tónlist, texta, kvikmyndir, innsetningar, teikningar og skúlptúra svo eitthvað sé nefnt.
Heiðurslistamaður hátíðarinnar er Kristinn Guðbrandur Harðarson, en hann hefur verið virkur í íslensku myndlistarlífi um áratuga skeið. Í verkum Kristins á sér stað persónuleg og ljóðræn úrvinnsla á hans nánasta umhverfi þar sem hann notast við fjölbreyttar miðlunarleiðir, texta, útsaum, skúlptúra, veggmálverk, teiknimyndir og gjörninga svo fátt eitt sé nefnt. Kristinn mun halda einkasýningu í Ásmundarsal, gefa út bókverk sem verður í leiðinni sjálfstætt sýningarými og sýnishorn eldri verk hans munu einnig vera til sýnis í Marshall húsinu.
Listamenn þeir sem taka þátt í Sequences IX, sem ber yfirskriftina Í alvöru, og sýningarstaðir verka þeirra eru eftirfarandi:
Ásmundarsalur + Bókaútgáfa
Kristinn Guðbrandur Harðarson
Harbinger
Ólöf Helga Helgadóttir
Open
Pétur Már Gunnarsson
Listasafn Reykjavíkur Hafnarhús “Græna herbergið”
Ívar Glói Gunnarsson
Opnunarverk í Marshallhúsinu
Þóranna Björnsdóttir
La Primavera í Marshallhúsinu
Kristinn Guðbrandur Harðarson
Kling & Bang, sýning a)
Mark Lewis, James Castle, Emma Heiðarsdóttir, Jason de Haan, Karin Sander, Ceal Floyer, Kristján Guðmundsson, Sæmundur Þór Helgason, Kristinn Guðbrandur Harðarson, Roger Ackling og Hildur Bjarnadóttir
Nýlistasafnið, sýning b)
Guðný Guðmundsdóttir, Kristinn Guðbrandur Harðarson, Arna Ýr Jónsdóttir, Karlotta Blöndal, Amanda Riffo, Margrét Helga Sesseljudóttir, Miruna Dragan, Davið Örn Halldórsson og Anna Þorvaldsdóttir
Fríkirkjan
Philip Jeck
Bíó Paradís
Douglas Gordon, Þorbjörg Jónsdóttir, Amanda Riffo og Agnes Martin
Textar
Margrét Bjarnadóttir, Guðbjörg R. Jóhannesdóttir, Kristján Leósson og Margrét H. Blöndal
Umbrot og Hönnun
Hrefna Sigurðardóttir
Sýningastjórar
Hildigunnur Birgisdóttir og Ingólfur Arnarsson