Selkórinn

(IS)

Selkórinn var stofnaður árið 1968 og var upphaflega kvennakór, en hefur starfað óslitið sem blandaður kór eftir að karlar gengu til liðs við hann árið 1976. Selkórinn hefur á ferli sínum sungið víða erlendis sem hérlendis þó Seltjarnarneskirkja sé ávallt helsta tónleikahúsið. Fjóla Kristín Nikulásdóttir tók við tónsprotanum haustið 2020. Fjóla er með masterspróf í óperusöng frá Konservatorium Wien í Vínarborg. Hún hefur getið sér gott orð í kórastarfi með kammerkórnum Schola cantorum, Kór Íslensku óperunnar og kammerkórnum Melódíu auk þess sem hún er stofnandi og stjórnandi Hljómfélagsins.

Associated events: